|
Í upphafi leikskólagöngu þarf að gefa barninu góðan tíma til að aðlagast leikskólanum.
(Aðalnámskrá leikskóla 1999, Menntamálaráðuneytið)
Að byrja í leikskóla er ný reynsla fyrir barnið og foreldra þess. Allt er framandi og ókunnugt og því er mikilvægt að vel sé staðið að aðlögun. Hvernig til tekst í byrjun getur haft áhrif á líðan barnsins seinna í leikskólanum.
Á Hlíðaborg höfum við tekið upp þá nýbreytni að foreldrar búi til persónulega möppu fyrir barnið sem komið er með daginn sem barnið byrjar í leikskólanum. Í þessari persónulegu möppu er mynd af barninu, fjölskyldu þess, vinum og vandamönnum og fleiru því sem barninu er kært. Einnig skrá foreldrar sögu barnsins fram að þeim degi sem það byrjar í leikskólanum. Þá má einnig hafa ljóð eða sögu sem barnið hefur lært heima og þykir gaman að heyra.
Með persónumöppunni erum við í leikskólanum að tengja saman tvo heima barnsins.
Þá er óskað eftir einni mynd af barninu til að hafa fyrir ofan fatahólf þess.
Á meðan á aðlöguninni stendur er mikilvægt að foreldrar gefi sér tíma til að kynnast starfsfólki leikskólans og því starfi sem þar fer fram. Einnig að starfsfólk kynnist foreldrum og að foreldrar kynnist innbyrðis. Í aðlögunarvikunni er lagður grunnur að góðu foreldrasamstarfi.
Aðlögun getur tekið mislangan tíma hjá börnunum, sem eru ekki öll eins. Hér má sjá tillögu að aðlögun á Hlíðaborg
Sérstaklega viljum við benda á liðinn "Spurt og svarað". Þar má finna upplýsingar um opnunartíma Hlíðaborg, sumarfrí, leikskólatöskuna, afmæli, veikindi og fleira.
|