| Leikskólinn minn |
|
|
|
Hlíðaborg v/Eskihlíð var byggð árið 1955. Fyrst var húsnæðið notað sem barnaskóli, Eskihlíðarskóli, en frá árinu 1960 hefur verið starfræktur leikskóli í húsinu. Árið 1991 var tekin í notkun viðbygging, sem bætti aðstöðu barna og starfsfólks.Hlíðaborg er þriggja deilda leikskóli. Heimahlíðarnar heita Drekahlíð, Tröllahlíð og Álfahlíð. Auk þess samnýtum við Listahlíð þar sem myndlist fer fram. Gullahlíð er hlutverkasvæði og er nýtt af elstu deildinni og hluta af yngri deildunum tveimur.
Í Hlíðaborg dvelja 49 börn samtímis og eru flest þeirra í heilsdagsvistun. Stöðugildi eru u.þ.b. 12, auk stöðu í eldhúsi og stöðu leikskólastjóra. Markmið Hlíðaborgar Leikskólinn starfar samkvæmt aðalnámskrá leikskóla. Námskrá Hlíðaborgar er síðan unnin í samræmi við aðalnámskrána og er hún endurmetin á nokkurra ára fresti. Á hverju hausti er starf næsta starfsárs ákveðið og gefin út ársáætlun. Það sem við í Hlíðaborg leggjum áherslu á er skapandi starf, málörvun og leikur með ritmálið. Þetta eru okkar aðalmarkmið. Einnig leggjum við áherslu á sjálfstæði barnanna og ábyrgð, sem undirbúning þess að þau geti valið og hafnað í framtíðinni. Við viljum að allir njóti lífsins hér og nú. Við teljum mikilvægt að við virðum hvert annað og sérkenni fólks, bæði fullorðnir og börn. Við viljum temja okkur umburðarlyndi og tillitsemi.
|
| 24.09.'10 Skipulagsdagur |
| 01.10.'10 Afmæli Hlíðaborg |