Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Spurt og svarað


Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

preeschool

 
 
Velkomin í leikskólann Hlíðaborg
 
Þetta skipulag er aðeins haft til hliðsjónar við aðlögunina. Börn eru misjafnlega fljót að aðlagast nýjum aðstæðum og þvi ekkert eitt skipulag sem hentar öllum. Aðlögun tekur oftast 5 til 10 daga en getur í sumum tilfellum tekið lengri tíma. Þess vegna þurfa allir að vera sveigjanlegir og gefa þessu ferli góðan tima svo að vel gangi.
 
 
 

Dagur 1
Barnið kynnist umhverfi leikskólans, kennurum og börnum á deildinni.
1 klst. Með foreldri
Mánudagur
9:15 – 10:15
Dagur 2
Barnið mætir í morgunmat. Eftir morgunmatinn getur barnið tekið þátt í leik barnanna eða með kennara og foreldri jafnvel farið fram í kaffistofu í stuttan tíma. Foreldri hjálpar svo barninu við að klæða sig og kemur með út milli kl.10 og 11.
 
2 - 3 klst. Með foreldri
 
Þriðjudagur
8:30 - 11
Dagur 3
Barnið mætir í morgunmat og foreldti dvelur með barninu þann tíma. Barnið fer í leik með kennara og börnum og ef allt gengur vel getur foreldri farið í burtu en það þarf að vera hægt að ná í það þi síma ef eitthvað er að. Foreldri kemur til baka kl.11:45 og borðar hádegismat með barninu.
 
3 – 4 klst. Með/Án foreldri
 
Miðvikudagur
8:30 – 12:00
Dagur 4
Barnið mætir kl. 8:30 í morgunmatinn. Ef vel gengur getur foreldri farið strax í burtu. Barnið dvelur fram yfir hvíldartímann. Foreldrar sækja barnið eftir hvíldina.
4 – 5 klst. Án foreldri
Fimmtudagur
8:30 – fram yfir hvíld
Dagur 5
Barnið mætir í morgunmatinn eins og hina dagana og dvelur í leikskólanum fram yfir síðdegishressingu eða til kl.15:15.
4 – 5 klst. Án foreldri
Föstudagur
8:30 – 15:30

 
 
Eftir vikuna meta foreldrar og deildastjóri hverning hefur gengið og ákveða hvort formlegri aðlögun sé lokið eða hvort það sé þörf á því að gefa barninu meiri tíma í að aðlagast leikskólanum.
 
Alla dagana þarf að vera hægt að ná í foreldra í síma ef eitthvað bjátar á.
 
Gangi okkur vel!!!
 
 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

bakpokar Mikilvægt er að klæðnaður barnanna sé þægilegur og klæða þarf börnin eftir veðri. Veður er rysjótt á Íslandi og þess vegna best að vera við öllu búinn.
Nauðsynlegt er að barnið hafi með sér aukafatnað, einnig er mikilvægt að merkja fatnaðinn.
Í leikskólanum vinnum við með ýmis efni, s.s. liti, lím og málningu, sem geta farið í föt barnanna. Því er æskilegt að börnin séu ekki í spariklæðnaði í leikskólanum.
Þau börn sem nota bleyju koma með þær að heiman.

Foreldrum er bent á að yfirfara fatnað, töskur og hólf fyrir hvern dag.
Við viljum einnig vekja athygli á því að tæma skal hólf og snaga í lok dags á föstudögum.


Hér að neðan má sjá lista yfir það sem á alltaf að vera í leikskólatöskunni:

 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

thumbnailcauf32rpEkki er æskilegt að börnin komi með leikföng, mat eða aðra smáhluti. Þó er leyfilegt að barnið komi með bók sem hægt er að lesa fyrir allan hópinn. Einnig mega börnin Álfahlíð hafa með sér eitt tuskudýr sér til halds og trausts. Við viljum benda á að starsfólk leikskólans getur ekki borið ábyrgð á þessum hlutum.

 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

maelirLeikskólinn getur ekki tekið við veiku barni. Barn sem veikist og er með hita þarf að dvelja heima þar til það er hitalaust.
Fái barnið smitandi sjúkdóm verður það að dvelja heima þar til smithættan er liðin hjá. Þetta er nauðsynleg ráðstöfun til að forðast útbreiðslu sjúkdóma í leikskólanum og sjálfsögð tillitssemi gagnvart öðrum börnum. Ef barn þarfnast inniveru í kringum veikindi þrufa foreldrar að ræða það við starfsfólk leikskólans, venjan er 1-2 dagar.

 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

afmaeliAfmælisdagur er stór dagur fyrir barnið. Haldið er upp á hann í leikskólanum, barnið fær kórónu og sunginn er afmælissöngur.  Barnið er í lykilhlutverki þennan dag, auk þess að sinna ýmsum störum einsog að bjóða til borðs gerir allir í leikskólanum sér far um að óska barninu til hamingju og hjálpa til við að það upplifi sig mjög sérstakt.


 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 3

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Hlíðaborg | Eskihlíð 19 | 105 Reykjavík | Sími: 552-0096 | Póstur | Viðburðir | Fréttir