|
Sumarhátíð, Opið hús og Útskrift elstu barna 11. júní |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 08 júní 2010 00:00 |
Kæru foreldrar
Föstudaginn 11. Júní verður hátið í Hlíðaborg
Allir velkomnir.
Kl: 15:00 Skemmtiatriði frá öllum deildum. Börnin eru búin að æfa sig og hlakka til að sýna öllum.
Kl: 15:30 Veitingar og opið hús. Boðið verður uppá girnilega ávexti í boði foreldrafélagsins og svo ætlar
Eygló í eldhúsinu að töfra fram snúða sem allir eru vitlausir í.
OPIÐ HÚS, núna er upplagt að njóta sýningar barnanna og gang um allan leikskólann og skoða.
Kl: 16:00 Útskrift elstu barna. Hátiðleg útskrif elstu barnanna okkar.
Kl: 16:15 Leikrit í boði foreldra. Foreldrar úr hópi foreldra elstu barnanna stíga á svið og láta ljós sitt skína.
Kl: 17:00 Hátíð lokið og allir fara glaðir til síns heima.
|
|
|
Íþrótta og gullleitardagur |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 04 júní 2010 13:27 |
Börnin í Hlíðaborg eru dugleg að hreyfa sig og það sást vel á nýliðnum íþróttadögum.
Börnin fóru í nokkrum hópum í gegnum skemmtilega íþróttabraut hér í garðinum á Hlíðaborg.
Meðal íþróttagreina var stígvélakast, körfubolti, fallhlífaleikur og dúkkukerrurallý . Allir stóðu sig mjög vel og skemmu sér mjög vel líka.
Síðasti dagurinn var gullleitardagur og verðlaunaafhending. Sögð var saga af prins og prinsessu sem höfðu tapað gullinu sínu í hendur sjóræningja sem aftur týndu gullinu. Þá komu við hér í Hlíðaborg til hjálpar og fundum gulluð hér og þar um garðinn okkar. Þessari gullleit fylgdu fagnaðaróp og kapp hljóp í marga að finna sem mest gull.
Að lokum var verðlaunaafhending, allir íþróttamennirnir voru kallaðir á verðlaunapall og fengu medalíu, stolt og gleði var í hverju andliti og allir mjög sáttir með vel heppnaða daga.
.jpg) |
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 14 maí 2010 11:50 |
Fimmtudaginn 20. maí verður farið í sveitaferð að Grjóteyri. Við leggjum af stað kl.13.15.
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 3 af 20 |