Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Davíð Alexander, Ian Kristófer og Ísabella Fjóla kveðja Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Fréttir frá Trollahlíð
föstudagur, 03 júlí 2009 15:33

alt

Davíð Alexander, Ian Kristófer og Ísabella Fjóla eru að hætta í Hlíðaborg. Við héldum kveðjuhátíð fyrir þau þar sem við sungum kveðjulagið, þau fengu viðurkenningu og bók sem vinir þeirra höfðu búið til handa þeim.

Freyja á afmæli í fríinu og héldum við upp á það í dag. Freyja fékk kórónu, skykkju og auðvitað var sungin afmælissöngurinn.

Við vorum úti í allan dag, grilluðum puslur í hádeginu og boðið var upp á andlitsmálningu.

Takk kærlega fyrir samveruna í Hlíðaborg og gangi ykkur vel í nýja leikskólanum.

Kveðja frá öllum í Hlíðaborg

 

 
Sumarkveðja frá Álfahlíð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Fréttir frá Álfahlíð
miðvikudagur, 01 júlí 2009 13:00

alt

Við á Álfahlíð höfum mikið verið að bralla í sumar,eins og sjá má á myndunum sem eru komnar hérna á heimasíðunna.  Nú síðast var það náttfatadagurinn sem að heppnaðist líka svona ljómandi vel og allir svo glaðir að fá að vera í náttfötunum sínum og ekki síður var það spennandi að fara að lúlla í þeim.  Nú styttist óðum í sumarfríið hjá okkur öllum og vonum við að þið eigið gott og ænægjulegt sumarfrí í vændum.

Kveðja frá öllum á Álfahlíð.

 
Nýjar myndir af Töllabörnum Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Fréttir frá Trollahlíð
miðvikudagur, 01 júlí 2009 11:51

Ágætu foreldrar

Við viljum vekja athygli á því að glænýjar myndir eru komnar inná heimasíðuna. Myndirnar eru í maí og júní albúmum. Þar eru myndir frá heimsókn á leikskólann Rauðhól þar sem við heimsóttum útideild Rauðhóls í Gunnarslundi. Við lékum okkur úti allan daginn og voru allir mjög þreyttir eftir alla útiveruna. Einnig eru myndir frá gönguferð á Miklatún, Brúðubílinn, bæjarferð, umhverfisviku, og margt margt fleira.

Endilega kíkið á þær með barninu ykkar. Góða skemmtun.

kveðja frá öllum á Tröllahlíð

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 10 af 20

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Hlíðaborg | Eskihlíð 19 | 105 Reykjavík | Sími: 552-0096 | Póstur | Viðburðir | Fréttir